Fimmtudaginn 31. maí efna félögin ÍMARK og MANNAUÐUR til fundar um innri markaðssetningu. Fjallað verður um hvernig markaðs- og mannauðsdeildir vinna saman við að skapa jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi sem skilar árangri.
Fundurinn verður heldinn í Gamla Bíói fimmtudaginn 31. maí milli 15 og 17. Eftir fundinn verður boðið upp á drykk og léttar veitingar á Petersen svítunni.
Fyrirlesarar
Fyrirtækjamenning sem samkeppnisforskot.
Viggó Ásgeirsson, framkvæmdastjóri mannauðs og einn stofnenda Meniga.
VEITUR út á við og inn á við.
Skúli Skúlason framkvæmdastjóri Þjónustu og Sigrún Viktorsdóttir Forstöðumaður Þjónustustýringar
Hvernig má nýta starfsfólk í markaðssetningu, bæði innan og utanhús? Jón Skafti Kristjánsson, Forstöðumaður Markaðsdeildar hjá Icelandair.
Verð fyrir félaga er 9.900
Almennt miðaverð er 13.900