Tix.is

Event info

Ein allra skemmtilegasta og kraftmesta danssveit Íslands mætir enn á ný í Havarí og núna ásamt Hermigervil. FM Belfast hafa sprengt þakið af tónleikasölum um allan heim og áhangendur sveitarinnar skipta tugum ef ekki hunduðum þúsunda. Að fá FM Belfast í Havarí er svo mikill hvalreki að við trúum því varla sjálf að þetta sé að gerast þriðja sumarið í röð. Sumardansleikir FM Belfast í Havarí eru löngu orðnir göðsögn og þú vilt ekki missa af því þegar þau mæta ásamt Hermigervil föstudaginn 6. júlí og trylla þig inn í sumarnóttina.

ATH!!! Daginn eftir laugardaginn 7. júlí ætlar Prins Póló að stíga á svið ásamt Árna+1 úr FM Belfast og munu þeir saman flytja lög Prinsins í dansútgáfum sem fá mestu stirðbusa til þess að tryllast á dansgólfinu! Ath að þeir sem mæta á tónleika FM Belfast og Hermigervils á föstudeginum fá ókeypis inn á tónleika Prins Póló +1 á laugardeginum. 


Nánar á havari.is


Aldurstakmark er 18 ára.