Tix.is

Event info
Hellisbúinn hefur þróast mikið síðan hann bankaði síðast uppá á Íslandi og er nú orðinn þrælkunnugur hinum ýmsu öppum. Í raun og veru er um nýja sýningu að ræða, þó að undirliggjandi tónn Hellisbúans sé skýr.

Hellisbúinn er líklega vinsælasti einleikur heims. Hann hefur verið sýndur í 52 löndum, í yfir 1000 borgum og hafa tugir milljóna um allan heim séð þessa bráðfyndnu sýningu.

Jóel Sæmundsson túlkar hinn gifta meðalmann að þessu sinni, en Jóel er sjálfur einn fyndnasti maður sem hann þekkir, að eigin sögn. 

Hellisbúinn er frásögn af lífinu sjálfu, hjónabandi, ástum og ósætti. Hellisbúinn útskýrir sína sýn á samlífið og samskipti kynjanna. 

Konur og karlar, og allir hinir, sem hafa einhvern tímann verið 
í sambandi, eru í sambandi eða langar í samband, geta skemmt sér vel og samsamað sig við sögur Hellisbúans.

Yfir 105 þúsund Íslendingar hafa hlegið, grátið, og fengið ódýra hjónabandsráðgjöf hjá Hellisbúanum.

Miðaverð eru litlar 4.490 kr.