Tix.is

Event info

Jamie Carragher kemur!!

Það gleður að tilkynna að Jamie Carragher, goðsögn og fyrrum leikmaður Liverpool FC hefur staðfest komu sína á árshátíð Liverpool klúbbsins sem verður haldin á Grand Hótel þann 19. maí næstkomandi.

Jamie Carragher er næstleikjahæsti leikmaður í sögu félagsins, með 737 leiki fyrir Liverpool á árunum 1997-2013. Carragher varð tvívegis enskur bikarmeistari með Liverpool, auk þess að vinna Meistaradeild Evrópu, UEFA bikarinn og enska deildarbikarinn þrisvar sinnum.  

Dagskráin verður glæsileg að vanda. 
Húsið opnar kl 19 þar sem gestum gefst færi á að taka mynd af sér með heiðursgestinum. 
Það er svo enginn annar en Eyþór Ingi sem opnar árshátíðina í ár með þjóðsöng okkar í boði Jóa Útherja.
Borðhald hefst kl 20 með 2ja rétta veislumáltið í boði matreiðslumeistara Grand Hótels.
Villi Naglbítur sér um veislustjórn. Aðrir sem koma fram eru m.a. Hreimur og Rúnar Eff.
Nánari dagskrá verður tilkynnt síðar.

20 ára aldurstakmark.

Verð: 11.900 kr miðinn.

Matseðill:

Forréttur
RISAHÖRPUSKEL
Steikt risahörpuskel, villisveppakrem, kryddjurtasalat og andalifur.

Aðalréttur
NAUTALUND
Heilsteikt nautalund, hægelduð nautakinn, brasseraô rótargrænmeti, villisveppakartöflugratín og pinot noir rauðvínssósa.

Smelltu hér til að sjá yfirlitsmynd af salnum