Tix.is

Event info

Til heiðurs George Michael
Aukatónleikar í Eldborg 14. september 2018 kl. 21:00.

Það ætlaði allt um koll að keyra þegar stórskotalið Rigg viðburða heiðraði minningu George Michael í Eldborg með glæsilegum hætti fyrr á þessu ári. Eftispurnin hefur verið svo mikil að ákveðið hefur verið að halda aukatónleika föstudagskvöldið 14. september kl. 21:00.

George Michael lést á jóladag 25. desember 2016 aðeins 53 ára að aldri. Hann skaust upp á stjörnuhimininn snemma á níunda áratugnum í dúettnum WHAM. Síðar hóf hann sinn glæsilega sólóferil sem náði hæstu hæðum með metsöluplötunni FAITH sem innihélt marga af hans stærstu smellum eins og Faith, One More Try, Father Figure, Kissing A Fool og fl.

Hljómsveit Rigg viðburða, söngvarar og dansarar munu flytja lög eins og Everything She Wants - Freedom - Outside - Careless Whisper - Wake Me Up - I’m Your Man - I knew you were waiting og fl.

Allir listamennirnir sem koma fram eru miklir aðdáendur tónlistarmannsins.

Fram koma:
Söngur: Friðrik Ómar
Gestasöngvarar: Svala Björgvins, Jóhanna Guðrún, Jógvan Hansen,
Regína Ósk, Margrét Eir og Erna Hrönn
Trommur: Benedikt Brynleifsson
Slagverk: Einar V. Scheving
Bassi: Róbert Þórhallsson
Gítar og raddir: Kristján Grétarsson
Hljómborð og raddir: Ingvar Alfreðsson
Saxofónn og slagverk: Sigurður Flosason
Trompet: Kjartan Hákonarson
Dansarar: Javi Valino og Maxim Petrov
Einnig mætir Gospelkór Jóns Vídalíns undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar á svið

Hljóðmeistari: Haffi Tempó ásamt Björgvini Sigvaldasyni
Ljósameistari: Helgi Steinar
Grafík: Pálmi Jónsson
Videokeyrsla: Gísli Bergur Sigurðsson
Dansar: Birna Björnsdóttir
Aðstoð við búninga: Selma Björnsdóttir
Förðun: Elín Reynisdóttir og Sólveig Birna Gísladóttir
Hár: Íris Sveinsdóttir
Samsetning: Friðrik Ómar
Aðstoð við viðburð: Haukur Henriksen
Framleiðandi: Rigg viðburðir

Strax eftir tónleikana verður eftirpartý þar sem plötusnúður heldur uppi stuðinu frameftir kvöldi.