Tix.is

Event info

Þá er loksins komið að hinni árlegu Dragsýningu Hinsegin Norðurlands, stærsta árlega dragviðburði norðan heiða og þó víðar væri leitað og í ár verðum við í Hofi. 

Þáttakendur af öllu tagi stíga á svið og bjóða upp á eftirminnilegt kvöld fullt af glys, glamúr, glimmeri og öðrum nauðsynjum lífsins. 

Í ár munu við njóta þess heiðurs að fá á svið Gógó Starr, Jenny Purr og Deff Starr frá Dragsúgi sem að hafa áralanga reynslu af dragmenningu. 
Einnig stíga á stokk (aðrir) fyrrverandi verðlaunahafar í Dragkeppni Norðurlands.

 

Sýningin hefst stundvíslega klukkan 20:00 og viljum við biðja alla væntanlega gesti að hafa eins hátt og þá helst langar til.

 

Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Hinsegin Norðurland í gegnum facebooksíðu félagsins eða í hinsegin@hinsegin.net