Þungarokksveitin DIMMA mun blása til tónleika á Græna Hattinum fimmtudaginn 26. Apríl.
Á tónleikunum mun sveitin leika lög af öllum plötum sínum en langt er síðan sveitin hefur haldið slíka tónleika á þessum uppáhalds tónleikastað sínum.
Rétt er að minna á að daginn eftir, föstudaginn 27. apríl, mun sveitin koma fram á sama stað með „Rokkað kjaftæði og hin lögin“ tónleika en þeir tónleikar verða með öðru sniði en þessir því á fimmtudeginum verður ekkert bull og kjaftæði bara
ÞÚÚÚNGAROKK!