Tix.is

Event info

Takið þetta U2 kvöld frá !!!

Laugardaginn 24. mars næstkomandi verður mikið um dýrðir á Græna Hattinum þar sem tónlist U2 verður leikin af nokkrum af vandaðri einstaklingum íslenska poppgeirans.

U2 er fyrir löngu orðin að einni stærstu, vinsælustu og áhrifamestu hljómsveitum allra tíma.

Músíkin, bræðralagið og fagmennskan sem einkennir fjórmenningana er eitthvað sem aðrir tónlistarmenn stefna að allan ferilinn og er það ekki skrítið að nokkrir þeirra safnist saman og telji í nokkur af hinum ótalmörgu slögurum sem U2 hafa gefið heiminum.

Hljómsveitina skipa: 

Magni "okkar,, Ásgeirsson - Hewson
Biggi Nielsen - Mullen
Gunnar Þór - The Edge
Friðrik Sturluson - Clayton.