Tix.is

Event info

Edgy events kynna:

DJ ASSAULT

Dj Assault er guðfaðir tónlistar stefnunar Ghetto techno eða svokallaðar Rassa bassa tónlist. Hún er tilkomin frá Detroit borg og er hrá electrónísk taktföst tónlist með ögrandi textum sungnum yfir. Hún er samsuða af Hiphopi, Chicago ghetto house, electro, Detroit Techno. Hraðinn og textarnir eru það sem skera stefnuna frá öðrum. Dj Assault gaf út lagið Ass N Tittes árið 2001 og náði það gífurlegum vinsældum sem það hefur haldið allt til dagsins í dag. Hann hefur verið mjög afkastamikill og gefið út fjöldan allan af lögum og er ríkjandi kóngur tónlistarstefnunar.

Fram koma líka :

Alvia
Rímur og raddir eru hennar sérsvið 2016 gaf Alvia út sína fyrstu plötu “Bubblegum Bitch” ásamt því að stofna plötuútgáfuna “Gumgumclan” BGB var tilnefnt sem besta rapp lagið á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2016. Platan naut mikilla vinsældar og vann Kraum verðlaunin 2016 sem besta platan. Árið 2017 gaf hún sína aðra plötu “Elegant Hoe”. Sú plata var líka tilnefnd til Kraum verðlauna sem besta platan árið 2017. Alvia er búin að stimpla sig rækilega inn í hip hop tónlistarsenuna sem þungavigtar rappari og textasmiður. “Elegant Hoe” vakti mikla athygli og er tilnefnd til hinnar virtu Nordic music price ásamt Björk Guðmundsdóttir. Alvia vinnur nú í sinni þriðju plötu “Pistol Pony” sem gert er ráð fyrir að komi út sumarið 2018. Tónleikar með Alvíu samanstanda af grípandi lögum og líflegri sviðsframkomi. Sjónarspil sem spegla hennar líflega persónuleika.

Intr0beatz
Intr0Beatz öðru nafni Ársæll Þór er einn og okkar ástælustu taktsmiðum. Hann skaust á upp á stjörnuhimininn með hip hop sveitinni "Forgotten Lores" og gaf sér gott orð þar sem taktsmiður. Eftir að hafa lifað og starfað í hip hop senunni snéri hann sér að nýjum áskorunum og varð House tónlist fyrir valinu. Síðan þá hefur hann gefið út hvert lagið á fætur öðru og er orðin að skærustu stjörnu í íslenskri danstónlist. Tónlistin hans hefur verið gefin út hjá virtum úgáfufyrirtækjum á borð við Dark energt, Something Else og Closer To Truth