Tix.is

Event info

ARG viðburðir í samstarfi við casillero del diablo kynna:

Pálmi Gunnars // Feriltónleikar

Laugardagskvöldið 24. mars ætlar Pálmi Gunnarsson að stíga á svið í Hofi og flytja öll sín bestu og þekktustu lög, ásamt landsliði tónlistarmanna.

Ekki þarf að fjölyrða um tónlistarferil Pálma enda fáir íslenskir tónlistarmenn sem eiga jafnlangan og farsælan feril og hann.

Ásamt því að starfa með Mannakornum, Brunaliðinu, Friðryk, Blúskompaníinu og Póker, svo einhverjar hljómsveitir séu nefndar, hefur Pálmi átt glæsilegan sólóferil og unnið hug og hjörtu þjóðarinnar með söngperlum sem hvert mannsbarn þekkir.

Hver man ekki eftir lögum eins og Þitt fyrsta bros, Vegurinn heim og Hvers vegna varstu ekki kyrr? Og allir muna eftir Gleðibankanum, fyrsta framlagi Íslendinga í Eurovision, sem Pálmi flutti ásamt Helgu Möller og Eiríki Haukssyni.

Pálmi hefur ekki gert mikið af því að koma fram sem sóló-listamaður en stígur nú á stokk og fer yfir ferilinn með stórri hljómsveit. Það er því óhætt að segja að með þessum tónleikum gefist einstakt tækifæri til að hlusta á Pálma flytja öll sín þekktustu lög.

Forsala miða verður á tix.is og hefst föstudaginn 9. febrúar