Á tímum sem þessum liggur vel við að beisla kvenorkuna í tónlistarheiminum.
Jónína Björt Gunnarsdóttir ásamt gestasöngkonunum Selmu Björnsdóttur og Katrín Mist Haraldsdóttur munu flytja sérvalin lög eftir margar af þekktustu söngkonum heims. Þar á meðal Celine Dion, Whitney Houston, Adele, Emeli Sande og Beyonce.
Hljómsveitina skipa:
Hallgrímur Jónas Ómarsson - Gítar
Valgarður Óli Ómarsson - Trommur
Stefán Gunnarsson - Bassi
Ármann Einarsson - Píanó
Tónleikarnir eru styrktir af Akureyrarstofu