Tix.is

Event info

Á kaldri vetrarnótt er gott að ylja sér við fallega tóna. Norðlendingar geta því strax farið að hlakka til þess að fá yl í kroppin því ein ástsælasta hljómsveit landsins er á leið norður. Dikta mun bregða fyrir sig betri fætinum og stíga á stokk á Græna hattinum á Akureyri föstudagskvöldið 16. febrúar 2018. Það þarf vart að kynna þessi gæðablóð í Diktu fyrir Íslendingum enda fyrir margt löngu búnir að syngja sig og spila inn í hjörtu þjóðarinnar með hverjum smellinum á fætur öðrum sem hljómað hafa á öldum ljósvakans. Fólk er hvatt til þess að tryggja sér miða í tíma enda hefur vanalega selst upp á tónleika Diktu á Græna hattinum. Þeir sem mæta ganga glaðir og hýrir út í nóttina, öðrum verður kalt. Tónleikarnir byrja stundvíslega kl. 22.00 og kostar sléttar 3.500 kr inn.