Tix.is

Event info
Afrekshópur HSÍ hefur verið valinn og leikur gegn Degi Sigurðssyni og félögum frá Japan í Laugardalshöll fimmtudaginn 4. janúar kl. 19.30. 

Hópinn skipa þeir leikmenn sem hafa skarað fram úr í Olísdeild karla á tímabilinu og eru sumir hverjir farnir að berja fast á dyrnar hjá A-landsliðinu.

Þjálfari liðsins og sá sem velur hópinn er Einar Guðmundsson, íþróttastjóri HSÍ.

Miðaverði er stillt í hóf og er aðeins 1.000 kr.

Börn yngri en 15 ára fá frítt inn.

Framtíðinn er björt í handboltanum og það verður virkilega gaman að sjá Afrekshóp HSÍ gegn japanska landsliðinu á fimmtudag.

Afrekshópurinn er eftirfarandi:

Markverðir
Grétar Ari Guðjónsson, ÍR
Viktor Gísli Hallgímsson, FRAM

Vinstri hornamenn
Hákon Daði Styrmisson, Haukar
Vignir Stefánsson, Valur

Hægri hornamaður
Óðinn Þór Ríkharðsson, FH

Línumenn
Ágúst Birgisson, FH
Atli Ævar Ingólfsson, Selfoss

Hægri skyttur
Teitur Örn Einarsson, Selfoss
Kristján Örn Kristjánsson, Fjölnir
Arnar Birkir Hálfdánsson, Fram

Vinstri skyttur
Daníel Ingason, Haukar
Egill Magnússon, Stjarnan
Ísak Rafnsson, FH

Miðjumenn
Elvar Örn Jónsson, Selfoss
Gísli Þorgeir Kristjánsson, FH
Aron Dagur Pálsson, Stjarnan