Tix.is

Event info

Verið hjartanlega velkomin í kvenna- og karlakakó sunnudaginn 10. desember í Jógastúdíó, Ánanaustum 15. Við munum drekka 100% hreint kakó, hugleiða, gera öndunaræfingar, fara í tónferðalag, opna hjörtun okkar fyrir dýpri sjálfsást og kærleik til annarra. Við sköpum rými til dýpka tenginguna við innra sjálfið og finna fyrir friðsæld. Athöfnin hefur yfirskriftina orkustöðvar og við vinnum markvisst með þær (e. chakras). 

Kakóið sem við drekkum kemur frá regnskógum Guatemala og er sannkölluð súperfæða. Cacao innheldur yfir 1000 efni, mesta magn magnesíum og andoxunarefna nokkurrar plöntu í heiminum, króm, theobromine, manganese, sink, kopar, járn, C vítamín, omega 6 fitusýrur, tryptophan, og serótónin svo eitthvað sé nefnt. Kakó er mjög góður náttúrulegur orkugjafi og ástardrykkur. Það inniheldur PEA, efni sem við framleiðum þegar við verðum ástfangin. PEA skerpir líka fókus og athygli. Anandamide, sem einnig er þekkt sem "the bliss chemical" hefur aðeins fundist í einni plöntu - Cacao. 

Gerðu ráð fyrir öllum eftirmiðdeginum í þessa kakóathöfn og mælt er með að gera engin plön fyrr en eftir kl. 18. Athöfnin fer fram í Jógastúdíó og hefst kl. 14. 

Athöfnin kostar 5700. Takmarkað pláss er í boði og því nauðsynlegt að kaupa miða fyrirfram. Ef einhverjar spurningar vakna er þér velkomið að hafa samband í gegnum tölvupóst á kakomedkamillu@gmail.com. 

Stundina leiðir Kamilla Ingibergsdóttir yogakennari en hún hefur stundað yoga og hugleiðslu um árabil. Hún kynntist kakóinu frá Guatemala fyrst í maí 2016 og hefur síðan notað það til að dýpka hugsleiðslu og tengjast inn á við. Hún hefur haldið reglulegar kakóathafnir, kakóhugleiðslur og KakóRó í Jógastúdíó í Vesturbænum, yogasal Oddsson og víðar fyrir einkahópa. Hér má finna Kakó með Kamillu á Facebook.

Nokkur góð ráð fyrir athöfn:
-Borðaðu eingöngu létta máltíð fyrir athöfn og helst nokkrum tímum áður en hún hefst. Það er líka í boði að fasta.
-Ekki er ráðlagt að drekka kaffi sama dag og athöfnin fer fram.
-Áfengi og kakó fara ekki mjög vel saman og því ráðlagt að drekka ekki áfengi kvöldið áður. 
-Klæðstu þægilegum fatnaði. Það eru teppi og púðar á staðnum.
-Láttu mig vita ef þú tekur inn geðlyf eða ert hjartveik og ég get ráðlagt þér hvort eða hversu mikið kakó gott er að drekka. 
-Komdu með opin hug og settu þér jafnvel ásetning ef það er eitthvað sem þú vilt vinna sérstaklega með. 
-Það er góð hugmynd að taka með orkustöng, ávöxt eða smá nasl til að hafa við höndina strax eftir að athöfn lýkur. Maður finnur ekkert fyrir svengd í athöfninni sjálfri en hún getur síðan blossað upp strax á eftir.