Tix.is

Event info

Vocal Project - True Colors

Guðríðarkirkja - 20. janúar - 2018

Vocal Project heldur litríka vetrartónleika í Guðríðarkirkju á nýju ári. Innblástur tónleikanna eru allir regnbogans litir í afar frjálslegri túlkun kórsins.

Vocal Project er um 80 manna kór sem fer ótroðnar slóðir í lagavali og syngur allt frá Disneylögum til þungarokks og pönks. Á efnisskránni í janúar eru lög þar sem litir koma fyrir í textum, listamannsnöfnum eða plötuheitum frá ekki ómerkari li(s)tamönnum en Bítlunum, Green Day, Klíkunni og Metallica – í allt að 8 röddum! Kórstjóri er hanakamburinn Gunnar Ben. Hann er oftast í svörtu.

Miði á litríka skammdegistónleika er frábær jólagjöf fyrir tónlistarunnendur. Losaðu þig við jólastressið og kauptu miða strax!