Til heiðurs
George Michael
Tónleikar í Eldborg 2. mars 2018 kl.
21:00
- Miðasala hefst 28. nóvember kl.
10:00
Vegna fjölda áskoranna stígur einvalalið listamanna hjá Rigg viðburðum á stóra sviðið í Hörpu og heiðrar minningu George Michael.
George Michael lést á jóladag 25. desember 2016 aðeins 53 ára að aldri. Hann skaust upp á stjörnuhimininn snemma á níunda áratugnum í dúettnum WHAM. Síðar hóf hann sinn glæsilega sólóferil sem náði hæstu hæðum með metsöluplötunni FAITH sem innihélt marga af hans stærstu smellum eins og Faith, One More Try, Father Figure, Kissing A Fool og fl.
Það er ekki ólíklegt að stemningin verði rafmögnuð þegar fleiri smellir á borð við Everything She Wants - Freedom - Outside - Careless Whisper - Wake Me Up - I’m Your Man munu hljóma á þessu magnaða kvöldi.
Sannarlega skemmtun sem enginn unnandi George Michael og Wham ætti að láta framhjá sér fara.
Allir listamennirnir sem koma fram eru miklir aðdáendur tónlistarmannsins.
Fram koma:
Söngur: Friðrik Ómar
Raddir: Regína Ósk, Margrét Eir og Erna Hrönn
Trommur: Benedikt Brynleifsson
Slagverk: Einar V. Scheving
Bassi: Róbert Þórhallsson
Gítar og raddir: Kristján Grétarsson
Hljómborð og raddir: Ingvar Alfreðsson
Saxofónn og slagverk: Sigurður Flosason
Trompet og hljómborð: Ari Bragi Kárason
Gospelkór Jóns Vídalíns
Dansarar undir stjórn Birnu Björnsdóttur
Einnig mæta óvæntar söngstjörnur á svæðið
Hljóðmeistari: Haffi Tempó
Ljósameistari: Helgi Steinar
Til heiðurs George Michael í Hofi
Framleiðandi: Rigg viðburðir