Tix.is

Event info

Kammerhópurinn Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin. Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart við kertaljós í tuttugu og fjögur ár og verðu þetta því í tuttugasta og fimmta skiptið sem þessi tónleikaröð er haldin og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu.

Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason, klarinettuleikari, Emilía Rós Sigfúsdóttir flautuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari, Bryndís Pálsdóttir fiðluleikari, Svava Bernharðsdóttir, víóluleikari og Sigurður Halldórsson, sellóleikari. Á efnisskránni er tvær af perlum Mozarts hinn gullfallegi kvintett fyrir klarinettu og strengi og glitrandi kvartett fyrir flautu og strengi.

Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða, ” Í dag er glatt í döprum hjörtum”, sem er úr Töfraflautunni eftir Mozart.

Tónleikarnir verða sem hér segir:
Í Hafnarfjarðarkirkju, Þriðjudagskvöldið 19. desember,
Kópavogskirkju, miðvikudagskvöldið 20. desember,
Garðakirkju, fimmtudagskvöldið 21. desember
Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudagskvöldið 22. desember.

Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir allir klukkan 21.00. Kirkjurnar eru einungist lýstar með kertaljósum.Aðgangseyrir er kr. 2800, og kr. 2000 fyrir nemendur og eldri borgara.. Frítt er inn fyrir börn.