Tix.is

Event info

Sætabrauðsdrengirnir Bergþór Pálsson, Gissur Páll Gissurarson, Hlöðver Sigurðsson og Viðar Gunnarsson ásamt Halldóri Smárasyni, útsetjara og píanóleikara, verða í jólastuði í Hveragerðiskirkju 26. nóvember 2017.

Það verður hátíðarbragur og eftirvænting í loftinu, jólagæsahúð! Strákarnir eiga samt mjög erfitt með að bregða ekki á leik af og til. Sætabrauðsdrengirnir hafa haldið stórskemmtilega jólatónleika síðastu ár og gert víðreist um landið með íslensku dægurlagaprógrammi sem hlaut frábærar viðtökur.

Látið ekki þessa gleðijólatónleika fram hjá ykkur fara!