Tix.is

Event info

Leiklist í 60 ár!

Nú eru 60 ár síðan húsið okkar, Freyvangur, var vígt sem félagsheimili og fyrsta leiksýningin sett á fjalirnar. Þvi ber að fagna og þess vegna er öllum boðið til glæsilegrar afmælisveislu!

Húsið ómar enn á ný af leik og söng en góður hópur eldri og yngri félaga stíga á stokk og leiða ykkur í gegnum brot af því besta úr ýmsum sýningum. Dramatísk, fyndin, skrýtin og skemmtileg atburðarás ásamt safaríkum sögum af baksviðinu og uppákomum á sýningum. Ætli ræningjarnir ræni sýningunni með Heródes í broddi fylkingar? Hvað verður þá um Dýrin í Hálsaskógi, ætli þau geti sótt um hæli í Kvennaskólanum??