Tix.is

  • Laugardalshöll
  • Apr 18th 8:00 PM
Event info

Jessie J heldur sannkallaða stórtónleika í Laugardalshöll þann 6. júní 2018

Ný tilkynning: Karitas Harpa hitar upp

Karitas Harpa kom fyrst almennilega á sjónarsvið Íslendinga með þátttöku sinni í The Voice Ísland veturinn 2016-2017 þar sem hún bar sigur úr býtum. Eftir sigurinn gaf hún út ábreiðu af sigurlagi sínu Sæla og í kjölfar þess unnu hún og Daði Freyr saman og gáfu út 3 frumsamin lög. Þá gaf hún einnig út sitt eigið jólalag fyrir síðustu jól. Síðan þá hefur hún verið sýnileg og mikið komið fram meðal annars sem meðlimur í sönghópnum Fókus sem söng í úrslitum undankeppni Eurovision nú í vor og síðast sem hluti af GRL PWR hópnum sem tóku sig til og héldu Spice Girls tónleika á Húrra við fullt hús og gríðarlega góðar undirtektir. Nú er komið að því að Karitas gefi út sína fyrstu sóló tónlist og vinnur hún nú að eigin EP plötu. Nú þegar eru nokkur lög klár og verða þau m.a. flutt sem upphitun fyrir Jessie J sjálfa.

Jessie J

Hin frábæra söngkona, lagasmiður, persónuleiki og ofurstjarna, Jessie J á meðal annars risasmellina Price Tag, Bang Bang, Domino, Do it Like a Dude, Flashlight, Masterpiece og fleiri. Og nú munu fleiri smellir bætast í hópinn því það styttist í nýja plötu frá Jessie J.

Jessie J kom fyrst á sjónarsviðið árið 2011 með fyrstu plötunni sinni Who You Are en á þeirri plötu komust 6 lög á topp tíu í Bretlandi en lagið Price Tag fór í efsta sætið um allan heim. Er hún fyrsti kvenmaðurinn til að ná sex lögum af sömu plötu inn á topp 10. Lagið Domino kom svo næst og fór það beint í efsta sæti um allan heim en með því lagi náði Jessie J fótfestu í Bandaríkjunum. Og með laginu Bang Bang, þar sem Ariana Grande og Nicky Minaj eru með henni, er hún virkilega búin að stimpla sig inn sem ofurstjarna.

Jessie J hefur af mörgum talin vera með eina albestu söngrödd í poppheimsins í dag. Margir sáu hana árið 2012 í sjónvarpinu á lokaathöfn Ólympíuleikana í London, þar sem hún söng We Will Rock You með hljómsveitinni Queen. Hún hefur einnig verið þjálfari í bresku þáttunum The Voice.

Jessie J semur stóran hluta af lögum sínum sjálf en áður en hún hóf söngferil sinn vann hún við að semja lög fyrir aðra. Hefur hún m.a. samið fyrir Miley Cyrus, Justin Timberlake, Chris Brown, David Guetta og marga fleiri.

Bang Bang er með yfir milljarð ,,views“ á youtube. Price Tag er með nærri því tæpar 700 milljónir ,,views“, Domino með  260 milljón ,,views“ Who´s Lauging now með 136 milljón ,,views“. Do it like a Dude með 120 milljóni ,,views“.

Svo á hún ótal önnur lög sem hafa farið frá 20 milljón ,,views“ og upp í um 100 milljón ,,views“.

Það má því með sanni segja að Jessie J er einstök og hljómleikar hennar í Laugardalshöll munu án ef verða frábærir...

Vinsamlegast athugið að börn yngri en 12 ára verða að vera í fylgd með forráðamönnum.