Tix.is

Event info

Dropinn styrktarfélag barna með sykursýki heldur sína fyrstu styktarónleika þriðjudaginn 14. nóvember klukkan 20.00 í Seljakirkju. Megin markmið Dropans er að halda úti sumarbúðum fyrir börn og unglinga með sykursýki. Öll innkoma af miðasölu á þessa tónleika rennur óskipt í sjóð fyrir sumarbúðirnar.

Fram koma: Greta Salóme og hljómsveit hennar Kráwtína folk band, Valdimar Guðmundsson, Hreindís Ylva, Reykjavík Swing Syndicate ásamt Ingrid Örk Kjartansdóttur, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir básúnleikari ásamt Margréti Arnardóttur harmonikuleikar, Aron Hannes og Sylvía Rún ásamt Elísabetu Svölu Dropastelpu og hljómsveitin Værð. Kynnir er Gunnar Helgason.

Vonumst til að sjá sem flesta!

14. nóvember er alþjóðlegur vitundarvakningar dagur um sykursýki og afmælisdagur Kanadíska vísindamannsins og nóbelverðlaunahafans Frederik G. Banting sem ásamt aðstoðarmanni sínum Charles Best, einangraði hormónið Insúlín. Það var fyrsta skrefið í að breyta sykursýki úr dauðdadómi yfir í ástand sem hægt var að lifa með.