Tix.is

Event info

Loksins er eitthvað gert fyrir krakkana því hér eru tónleikar þar sem krakkar á öllum aldri eru velkomnir Ekkert lát virðist vera á úgáfu á íslensku rappi þessa dagana og rappunnendur geta vel við unað. Einir helstu kyndilberar íslensku rappsenunnar, Úlfur Úlfur gáfu frá sér einkar vel heppnaða plötu nýverið sem ber nafnið „Hefnið okkar“. Eftir vel heppnaða útgáfu hafa drengirnir verið iðnir við kolann og leikið vítt og breitt hérlendis og erlendis og verða m.a. á mánaðartúr um Evrópu í september. Þangað liggur svo leiðin á Græna hattinn þar sem drengirnir mæta eflaust í fanta formi og bjóða til veglegrar veislu.