Tix.is

Event info

Söngvaskáldin Ragnheiður Gröndal, Kristjana Stefáns og Svavar Knútur munu halda jólatónleika í desember, undir yfirskriftinni Eitthvað fallegt.

Tónleikarnir heita eftir samnefndri hljómplötu þeirra sem kom út hjá Dimmu útgáfu árið 2014.

Á tónleikunum kennir ýmissra grasa úr jólagarðinum, bæði verða flutt sígild íslensk jólalög og nokkur frumsamin lög eftir listafólkið og er áherslan lögð á látleysi, einfaldleika og einlægni í flutningi. Allur hljóðfæraleikur er í höndum tríósins og er hljóðheimnum þannig haldið eins lágstemmdum og mögulegt er.

Ragnheiður, Kristjana og Svavar leggja uppúr því að stemmningin á tónleikunum verði líkust kvöldvöku eða góðri samverustund. Þetta á því að vera hin fínasta stund fyrir alla fjölskylduna.

Tónleikarnir verða á eftirfarandi dögum og stöðum:
6. des kl. 21 - Siglufjarðarkirkja - Siglufirði
7. des kl. 21 - Græni Hatturinn - Akureyri
9. des kl. 17 og 21 - Fríkirkjan - Reykjavík
14. des kl. 21 - Edinborgarhúsið, Ísafirði
15. des kl. 21- Hólmavíkurkirkja, Hólmavík
16. des kl. 21 - Bjarteyjarsandur, Hvalfjarðarsveit

Miðaverð á tónleikana er kr. 3.500 en ókeypis er fyrir börn 14 ára og yngri. Þá er sérstakur afsláttur fyrir eldri borgara, öryrkja og atvinnulausa.

Hluti miðaverðs tónleikanna rennur til góðs málefnis.

Kær kveðja
Kristjana, Ragga og Svavar Knútur