Tix.is

Event info
Aðeins 17 ára gamall var Björn Jörundur búinn að semja lögin sem Íslendingar hafa nú sett á sama stall og lög Mannakorna og Stuðmanna.   Aðeins tveimur árum síðar voru smellirnir farnir að nálgast tuginn. Hann sló svo í gegn sem kvikmyndaleikari í Sódómu Reykjavík og frammistaða hans í Englum alheimsins er ógleymanleg. Þessi litríki listamaður mun fara með okkur í gegnum gullkistu laga sem inniheldur meðal annars Frelsið, Fram á nótt og Hjálpaðu mér upp.