Tix.is

Event info

Hljómsveitin Maus fagnar 20 ára afmæli plötunnar "Lof mér að falla að þínu eyra" með endurútgáfu á vínýlplötu. Í kjölfarið mun hljómsveitin spila örfáa vel valda tónleika. Einn þeirra verður á Hard Rock Cafe þann 24. nóvember. Leikin verða öll helstu lögin af plötunni auk fjölda slagara úr höfundaverki sveitarinnar. Einungis er um þessa einu tónleika að ræða á höfuðborgarsvæðinu. Platan verður seld á tilboðsverði á staðnum.