Stefán Hilmarsson heldur árlega jólatónleika sína í Silfubergi Hörpu þann
15. desember. Sérstakir gestir Stefáns í ár verða Ágústa Eva, Birgir Steinn, Kristina
Bærendsen frá Færeyjum og hin bráðefnilega söngkona Hrafnhildur Magnea,
sem notast við listamannsnafnið Raven.
Á tónleikunum verða að vanda flutt lög af jólaplötum Stefáns, „Í desember“ og
„Ein handa þér“, í bland við sérvalin stemmnings- og hátíðarlög af ýmsum toga.
Hljómsveitin verður eins og ávallt skipuð annáluðum sérfræðingum og galdramönnum.