Tix.is

Event info

Mambóbandið skipar fríður flokkur hljóðfæraleikara og söngvara sem allir eiga það sameiginlegt að dýrka og dá salsatónlist. Söngvarar eru Sesselja Magnúsdóttir ásamt hinum kúbanska söngvara og tónlistarmanni La Melo. Hljóðfæraleikarar eru Jóhannes Þorleiksson trpt, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir bás, Daníel Helgason gtr, Baldvin Snær Hlynsson pno, Alexandra Kjeld söngur og bassi, Kristofer Rodriguez Svönuson og Einar Scheving á slagverk. Hljómsveitin leikur aðalega ópusa kúbönskra og kolumbískra salsahefða þar sem tónleikagestir geta ýmist notið tónlistarinnar í sætum sínum eða dillað sér í haustgarranum

Borðapantanir í s: 551 2442
rosenbergrvk.com