Tix.is

Event info

Fjórar stjörnur! - S.J. Fréttablaðið.

Fjórar og hálf stjarna! - R.E. Pressan.

Sóley Rós ræstitæknir segir frá sögu og sambandi hjónanna Sóleyjar og Halla. Verkið er byggt á viðtölum við íslenska hvunndagshetju sem hefur átt lygilegt lífshlaup, hefur kynnst mótlæti og sárum missi sem hver sem er gæti kiknað undan. Sóley Rós er einstök persóna. Hún er 42 ára mamma, amma, eiginkona og skúringakona. Hún er Bjartur í Sumarhúsum, hún er Þóra í Hvammi. Meinfyndið og grátbroslegt verk um samtímann sem tekur á mikilvægum málefnum sem allir hafa skoðanir á og varða okkur öll.

„Saga sem bætir heiminn“ J.S.J. Kvennablaðið

„Sólveig túlkar sársauka Sóleyjar Rósar af sterkri innlifun sem lætur engan ósnortinn.“ S.B.H. Morgunblaðið.

„Bráðfyndið leikrit sem hittir beint í hjartastað, fullkomlega íslenskt en á sama tíma sammannlegt og líka skerandi sárt. … Sterkur efniviður sem unnið er úr af virðingu, hnitmiðaður leiktexti, hárbeitt leikstjórn Maríu Reyndal og stjörnuleikur Sólveigar og Sveins Ólafs“. D.S. Starfugl

Sóley Rós ræstitæknir hlaut 5 tilnefningar til Grímuverðlauna 2017.

Þá hlutu þau Grímuna fyrir - Leikrit ársins 2017 & Leikkonu ársins í aðalhlutverki 2017

Höfundar leikverks: María Reyndal og Sólveig Guðmundsdóttir.
Leikarar: Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson
Leikstjórn: María Reyndal
Ljósa - og sviðshönnun: Egill Ingibergsson
Myndbönd: Pierre Alain Giraud
Búningar: Margrét Einarsdóttir
Tónlist: Úlfur Eldjárn
Hár og förðun: Diego Batista
Framkvæmdastjórn: María Heba Þorkelsdóttir