Tix.is

Event info

Allt er þegar þrennt er!

Þá er komið að því að heiðra rokk/metal hljómsveitina System of a Down í þriðja sinn (af því að þetta er svo fáránlega skemmtilegt!) en sveitina þarf vart að kynna.

System of a Down var stofnuð í Kaliforníu árið 1994 og hefur gefið út 5 plötur en þær hafa selst samtals í yfir 40 milljón eintökum. Hljómsveitin hefur vakið athygli fyrir pólitíska ádeilu í textum sínum og áhrif frá Armenskri þjóðlagahefð en allir meðlimir sveitarinnar eiga rætur að rekja til Armeníu.

Tónleikarnir verða haldnir á Hard Rock laugardagskvöldið 14. október.

Það er um að gera að tryggja sér miða sem allra fyrst því takmarkað magn er í boði. Komið og dansið hliðar saman hliðar undir ljúfum tónum System of a Down!

Heiðurssveitina skipa:
Stefán Jakobsson - Söngur
Finnbogi Örn Einarsson - Söngur
Hrafnkell Brimar Hallmundsson - Gítar
Þórður Gunnar Þorvaldsson - Gítar/hljómborð/söngur
Erla Stefánsdóttir - Bassi/söngur
Sverrir Páll Snorrason - Trommur