Tix.is

Event info

Gull, okkar bjór kynnir:

Útgáfutónleikar Moses Hightower

Hljómsveitin Moses Hightower sendi á dögunum frá sér sína þriðju breiðskífu, „Fjallaloft“, og ætla þeir af því tilefni að halda veglega útgáfutónleika í Háskólabíói föstudagskvöldið 22. september.

Nýja platan inniheldur 11 lög, en lögin „Fjallaloft“, „Feikn“, „Trúnó“ og „Snefill“ hafa nú þegar gert góða hluti á öldum ljósvakans.

Síðasta plata Moses Hightower, „Önnur Mósebók“, hlaut einróma lof gagnrýnenda og var m.a. valin plata ársins 2012 hjá Fréttablaðinu. Hljómsveitin hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin það árið fyrir lagasmíðar og textagerð, og 5 tilnefningar þar að auki.

Moses Hightower mun flytja nýju plötuna á útgáfutónleikunum í bland við eldra efni, og fá til liðs við sig blásarasveit og aðra sparihjálparkokka. Hljómsveitin kemur sjaldan fram sökum dreifðrar búsetu, þannig að ekki láta þessa sannkölluðu tónlistarveislu fram hjá ykkur fara!