Tix.is

Event info

Þungarokkshljómsveitin DIMMA sendi frá sér plötuna Eldraunir um þessar mundir. Af því tilefni blæs sveitin til tónleika í Bæjarbíói  laugardaginn 16. september.

DIMMA hefur átt margar af sínum mögnuðustu stundum í Bæjarbíói  og eru þeir Dimmudrengir því mjög spenntir að flytja nýja efnið sitt á þessum rómaða stað en sveitin hefur ekki spilað í Hafnarfirði í allt of langan tíma.

Um ELDRAUNIR

Eldraunir er í raun síðasti hluti af þríleik sem tengist lauslega og hófst með útgáfu plötunnar Myrkraverk árið 2012 en þar var yrkisefnið öll þau mannanna verk sem framin eru í myrkrinu og skuggahliðum mannlífsins. Á Vélráð, sem kom út 2014, ræddi um þá klæki sem mannfólkið notar til þess að beygja náungann undir sinn vilja og ná yfirhöndinni og völdum í samskiptum sín á milli. Eldraunir er svo um erfiðleikana sem við mætum hvert og eitt í lífinu á meðan við berjumst áfram til að vinna okkur brautargengi í köldum og hörðum heimi.
Tónlistarlega þá kveður við nýjan tón á plötunni en hún er þyngri, harðari og hraðari en fyrri plötur Dimmu. Hljóðheimurinn er einfaldari og meira lifandi en áður enda var sveitin búin að eyða miklum tíma í demóupptökur áður en komið var í hljóðverið og menn vissu upp á hár hvað gera átti þegar þangað kom.
Á Eldraunum má því heyra mjög vel æfða rokkhljómsveit sem tekur upp við bestu aðstæður með helstu fagmenn landsins sér til aðstoðar, en platan er tekin upp í Sundlauginni í Álafosskvosinni undir stjórn Haraldar V. Sveinbjörnssonar upptökumeistara en Ívar Ragnarsson hljóðblandar og Hafþór “Tempó” Karlsson tónjafnar.

Um DIMMU

DIMMA hefur skipað sér í flokk allra vinsælustu hljómsveita landsins á síðustu árum. Sveitin hefur komið fram á hundruðum tónleika út um allt land og gefið út fjölmargar plötur og mynddiska. Tónleikar Dimmu hafa verið sendir út í sjónvarpi og útvarpi og sveitin hefur verið tilnefnd til fjölda verðlauna. DIMMA vann “Flytjandi ársins” á Hlustendaverðlaununum 2016 og hlaut Krókinn – sem er sérstök viðurkenning RÚV fyrir lifandi flutning á árinu 2014.

DIMMA á Facebook: https://www.facebook.com/dimmamusic/

DIMMA á Spotify: https://open.spotify.com/artist/6aWektyglfpO0k93ns3J1Z