Tix.is

Event info

FM belfast hélt ógleymanlega tónleika í Havarí sumarið 2016 og vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn. FM Belfast ganga lengra í sviðsetningu og almennri sturlun en önnur bönd, þau setja allt á hvolf og það er algjörlega ómögulegt að standa kyrr. Þau hafa sprengt þök af tónleikahöllum í öllum heimsálfum og munu verða fyrst til að fara til tunglsins. Klæddu á þig dansskóna, settu upp svitabandið og búðu þig undir alvöru sveitaball. Við vekjum athygli á því að daginn áður, föstudaginn 30. júní, heldur Lay Low tónleika í Havarí og varla annað í boði en að taka heila helgi í Berufirði!