Tix.is

Event info

Vertu hjartanlega velkomin í kvennakakó sunnudaginn 28. maí í Jógastúdíó, Ánanaustum 15. Við ætlum að drekka 100% hreint kakó, hugleiða, gera öndunaræfingar, fara í tónferðalag, jarðtengja okkur, opna hjörtun okkar fyrir enn meiri elsku og sjálfsást og dýpka tenginguna við okkur sjálfar, okkar innra sjálf. Athöfnin hefur yfirskriftina hreinskilni en þér er velkomið að setja þinn eigin ásetning fyrir athöfnina og vinna með það sem þú þarft eða vera í flæði og ekki ákveða neitt fyrirfram. Þitt æðra sjálf og líkaminn veit hvað þú þarft. 

Kakóið sem við drekkum kemur frá regnskógum Guatemala og er sannkölluð súperfæða. Það inniheldur mesta magn magnesíum og andoxunarefna nokkurrar plöntu í heiminum, króm, theobromine, manganese, sink, kopar, járn, C vítamín, omega 6 fitusýrur, tryptophan, serótónin og fleira. Kakó er mjög góður náttúrulegur orkugjafi og ástardrykkur. Það inniheldur PEA, efni sem við framleiðum þegar við erum glöð og verðum ástfangin. PEA skerpir líka fókus og athygli. Anandamide, sem einnig er þekkt sem "the bliss chemical" hefur aðeins fundist í einni plöntu - cacao. 

Gerðu ráð fyrir öllum eftirmiðdeginum í þessa kakóathöfn og mælt er með að gera engin plön fyrr en eftir kl. 17. Athöfnin fer fram í Jógastúdíó og hefst 13:00. 

Athöfnin kostar 5700. Takmarkað pláss er í boði og því nauðsynlegt að kaupa miða fyrirfram. Ef einhverjar spurningar vakna er þér velkomið að hafa samband í gegnum tölvupóst á kakomedkamillu@gmail.com. 

Athöfnina leiðir Kamilla Ingibergsdóttir en hún kynntist súkkulaðinu frá Guatemala fyrst í maí 2016. Síðan þá hefur hún farið tvisvar til Guatemala til að kynna sér krafta kakósins enn frekar. Hún hefur haldið reglulegar kakóathafnir fyrir konur í Jógastúdíó og víðar. Kamilla hefur stundað yoga og hugleiðslu í áratug og mun ljúka yogakennaranámi í ágúst. Hér má finna Kakó með Kamillu á Facebook.

Hér má lesa viðtal við hana í Fréttatímanum um dvölina í Guatemala. 

Nokkur góð ráð fyrir athöfn:
-Borðaðu eingöngu létta máltíð fyrir athöfn og helst nokkrum tímum áður en hún hefst. Það er líka í boði að fasta.
-Ekki er ráðlagt að drekka kaffi sama dag og athöfnin fer fram.
-Klæðstu þægilegum fatnaði. Það eru teppi og púðar á staðnum.
-Láttu mig vita ef þú tekur inn geðlyf eða ert hjartveik og ég get ráðlagt þér hvort eða hversu mikið kakó gott er að drekka. 
-Komdu með opin hug og settu þér jafnvel ásetning ef það er eitthvað sem þú vilt vinna sérstaklega með. 
-Það er góð hugmynd að taka með Nakd bar, ávöxt eða smá nasl til að hafa við höndina strax eftir að athöfn lýkur. Maður finnur ekkert fyrir svengd í athöfninni sjálfri en hún getur síðan blossað upp strax á eftir.