Tix.is

Event info

Tónlistarhátíðin HEIMA 2017 fer fram í Hafnarfirði 19. apríl - síðasta vetrardag. Hátíðin markar upphaf Bjartra daga, bæjarlistahátíðar Hafnfirðinga sem stendur dagana 19. – 23 apríl.

HEIMA 2017 er fjórða HEIMA-hátíðin sem hefur sannarlega fest sig í sessi sem skemmtileg og öðruvísi tónlistarhátíð sem býður upp á öðruvísi upplifun og meiri nánd en tónleikagestir sem og listamenn eiga að venjast.

Fjölskyldur munu sem fyrr opna heimili sín í miðbæ Hafnarfjarðar og í hverju húsi spila tveir mismunandi listamenn eða hljómsveitir. Fríkirkjan í Hafnarfirði hefur ákveðið opna dyr sínar fyrir HEIMA-fólki auk þess sem sviðið í Bæjarbíói verður notað eins og stofa þar sem tónleikagestir umkringja listamennina á sviðinu og þeir snúa baki í salinn.

Listamennirnir eru þrettán og allir koma fram tvisvar í sitthvoru HEIMA-húsinu í miðbænum. Það eru ekki allir að spila á sama tíma þannig að þeir sem eru duglegastir að rölta milli húsa geti séð sem flest atriði.

Setningarhátíð HEIMA og Bjartra daga verður í anddyri Bæjarbíós kl 18.30 á sjálfan hátíðardaginn og þar munu handhafar aðgöngumiða fá afhent armbönd, kort af hátíðarsvæðinu, HEIMA-húsunum sem spilað er í og dagskrá. Fyrstu HEIMA-tónleikarnir hefjast svo um kl. 20.00. og þeim síðustu lýkur um kl. 23.00. Rás 2 verður á staðnum og mun útvarpa hluta dagskrárinnar.

Þeir sem koma fram á HEIMA 2017 eru meðal annarra:

Auður
Soffía Björg
Helgi Jonsson
Marteinn Sindri
sóley
Gunnar Thordarson
Skítamórall
Bambaló
Kött Grá Pje
Andrés Þór Tríó
Lay Low (Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir)
Kronika
Konni Kass og HEIDRIK (FO)

Enn eiga þrjú spennandi nöfn eftir að bætast á þennan lista en HEIMA leitast við að bjóða upp á sem fjölbreyttasta dagskrá