Tix.is

Event info

ATH. Aðgangur er ókeypis en um takmarkaðan sætafjölda er að ræða svo fólk er vinsamlegast beðið um að tryggja sér miða með því að smella á Kaupa miða hér að ofan.

Viðburðurinn fer fram á ensku.

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Tom Stranger, brotaþoli og gerandi, stíga fram í sameiningu og halda fyrirlestur upp úr nýútkominni bók sinni Handan fyrirgefningar.*

Fyrirlesturinn var frumfluttur fyrir fullu húsi í Óperuhúsinu í Sydney fyrr í mánuðinum og hefur síðan þá verið fluttur í hinum ýmsu borgum Ástralíu og Bretlands. Hér er ekki um að ræða sama fyrirlestur og þann sem sýndur var af TED í febrúar en á þann fyrirlestur hefur nú verið horft yfir 2,7 milljón sinnum. Fyrirlesturinn í Salnum er byggður á sögu Þórdísar og Tom ásamt bókinni en fer víðar; inn á hugsjónir þeirra og markmið með því að deila sögu sinni og umræðunni sem þau vona að hún kveiki.

Gert er ráð fyrir að fyrirlesturinn og umræðurnar taki rúman klukkutíma. Diljá Ámundadóttir stjórnar umræðum.

Þegar Þórdís Elva var 16 ára unglingur í Reykjavík var henni nauðgað af kærasta sínum, ástralska skiptinemanum Tom. Hún kærði ekki ofbeldið sem hafði djúpstæð áhrif á alla hennar tilveru. Mörgum árum síðar skrifaði hún Tom og lýsti ofbeldinu sem hann beitti hana, í tilraun til að skila skömminni og rjúfa eigin þögn. Hún bjó sig undir neikvæð viðbrögð en fékk þess í stað skilyrðislausa játningu frá Tom, með ósk um að gera upp fortíðina í sameiningu. Eftir átta ára bréfaskipti ákváðu þau að mætast á miðri leið, í Suður-Afríku, landi sem á bæði sögu um átakanlegt ofbeldi og græðandi mátt fyrirgefningar.

Handan fyrirgefningar er áhrifarík og mögnuð saga af ferðalagi þvert yfir hnöttinn, frá ofbeldi til sátta. Hún er skrifuð í samvinnu geranda og brotaþola sem er algert einsdæmi í heiminum. Handan fyrirgefningar hefur vakið verðskuldaða athygli um heim allan sem sést e.t.v. best á því að bókin kemur samtímis út í Englandi, Svíþjóð, Þýskalandi og Ástralíu. Fleiri þýðingar eru væntanlegar, þ.á m. á japönsku og pólsku.

Þórdís segist hafa skrifað bókina einmitt vegna þess að henni er það kleift. „Ég var ekki grýtt, hýdd eða fangelsuð fyrir að hafa verið nauðgað,“ segir hún. „Ég var ekki neydd í hjónaband með gerandanum. Ég var ekki myrt til að endurheimta „heiður fjölskyldunnar“. Á vissan hátt má segja að stærsta áfall lífs míns sé jafnframt til marks um hversu mikilla forréttinda ég nýt, því ég get tjáð mig um það án þess að stofna öryggi mínu í hættu. En forréttindum fylgir ábyrgð og mér finnst ég skyldug til að beita rödd minni þegar svo margir brotaþolar um allan heim geta það ekki. En það er ekki nóg að brotaþolar tjái sig. Gerendur þurfa líka að rjúfa þögnina og axla ábyrgð. Mörg ár eru síðan brotið gegn mér fyrntist í lagalegum skilningi, en það dró ekki úr þörf minni að setja ábyrgðina á réttan stað og binda enda á sjálfsásökun mína.“

Tom tekur í sama streng: „Áframhaldandi þögn leiðir ekki til breytinga. Ég hef verið hluti af þessu vandamáli og nú langar mig að leggja mitt af mörkum til lausnarinnar. Tekið skal fram að ég er einn einstaklingur og alls ekki fulltrúi stærri hóps eða karlmanna í heild. Þetta er eingöngu mín saga, saga um hvítan millistéttarmann sem nauðgaði sextán ára kærustunni sinni þegar hann var sjálfur átján ára, og vill nú taka ábyrgð á sársaukanum sem hann hefur valdið í von um að það opni uppbyggilega umræðu."

*Allur ágóði Toms mun renna til góðgerðarmála.