Tix.is

Event info

Kristján Kristjánsson, KK, er með þekktustu tónlistarmönnum landsins. Hann hefur samið lög og leikið inn á hljómplötur og geisladiska um áratugaskeið og unnið til yfir tuttugu gull og platínuverðlauna fyrir tónlist sína. Hann samdi tónlistina við leikrit John Steinbecks Þrúgur Reiðinnar og Fjölskylduna sem bæði slógu aðsóknarmet í Borgarleihúsinu. Á s.l. ári var hann með sýningu í Borgarleikhúsinu, Vegbúar, sem Jón Gunnar Þórðarson leikstýrði. Sýningin var tilnefnd til Grímuverðlauna.

Græni Hatturinn á Akureyri er einn af uppáhalds tónleikastöðum hans á landinu og því er mikil tilhlökkun hjá okkur að fá hann hingað norður þ. 24.mars n.k.