Tix.is

Event info

Laugardaginn 25. febrúar næstkomandi mun íslenska roller derby liðið Ragnarök keppa sinn sjöunda heimaleik, að þessu sinni á móti þýska liðinu Karlsruhe RocKArollers.

Leikurinn verður haldinn í Hertz Höllinni Seltjarnarnesi og byrjar klukkan 17:00.

Roller derby eða hjólaskautaat er hröð og spennandi snertiíþrótt sem fer fram á hjólaskautum. Íþróttin er nokkuð ný af nálinni á Íslandi en félagið Roller Derby Ísland var stofnað árið 2011. Hjólin fóru að rúlla fyrir alvöru árið 2014 þegar ferðaliðið Ragnarök fór í sína fyrstu keppnisferð og hafa nú verið haldnir 6 heimaleikir hér á landi á móti erlendum liðum.

Styðjum við íslenska liðið og fjölmennum í Hertz Höllina 25. febrúar!

Frítt fyrir 12 ára og yngri.