Tix.is

Event info

Leikfélag Borgarholtsskóla kynnir: Rocky Horror, söngleikur eftir Richard O’Brien, sýndur í IÐNÓ 27. og 28. febrúar.

Í Rocky Horror segir frá tveimur þægum og prúðum unglingum, þeim Brad og Janet sem verða fyrir því óláni að bíllinn þeirra bilar úti á þjóðvegi. Eina húsið í nágrenninu er kastali Dr. Frankenstein. Húsbóndi kastalans reynist vera Dr. Frank N Furter sem kemur frá plánetunni Transilvaníu.

Dr. Frank N Furter er á kafi í vísindatilraun, er að búa til hinn fullkomna mann; Rocky. Í stað þess að fá hjálp við að gera við bílinn endar hið unga siðsama par innilokað í vægast sagt undarlegu og stórhættulegu ævintýri. Rocky Horror er söngleikur sem fólk um allan heim dáir og elskar. 

Richard O’Brien skrifaði The Rocky Horror Show árið 1973 og verkið var frumsýnt 19. júní sama ár í London. Sýningin gekk í langan tíma og hefur verið sett upp víða um heim. Árið 1975 var svo gerð kvikmynd eftir söngleiknum; The Rocky Horror Picture Show.

Leikstjóri: Vala Fannell

Þýðing: Veturliði Guðnason

Framleiðandi: Leikfélag Borgarholtsskóla