Tix.is

Event info

Á örfáum árum hefur Keflvíkingurinn, Valdimar Guðmundsson, orðið einn albesti söngvari vorra daga. Það virðist ekki skipta máli á hverju hann spreytir sig; allt verður að gulli. Fjölbreyttur ferill þessa unga flytjanda verður í brennidepli þegar hann heimsækir Jón Ólafsson og saman flytja þeir uppáhaldslög Valdimars, hans eigið efni og ræða lífið og tilveruna. Af nógu er að taka.

Þeim til aðstoðar verða þeir Andri Ólafsson og Ásgeir Aðalsteinsson.

Tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Húsið opnar kl. 19:00.