Tix.is

Event info

Reykjavík Cocktail Weekend er kokteilahátíð sem haldin er árlega í miðborg Reykjavíkur af Barþjónaklúbbi Íslands í samstarfi við fjöldann allan af veitinga og skemmtistöðum í borginni.

Hátíðin er haldin í fjórða sinn dagana 1. - 5. febrúar.

Á meðan á hátíðinni stendur verður sérstakir Reykjavík Cocktail Weekend kokteil seðlar í boði á stöðunum sem taka þátt og verða þeir drykkir á sérstöku tilboðasverði.

Staðirnir munu bjóða uppá fjölda viðburða tengda hátíðinni sem eru öllum opnir.

Barþjónaklúbburinn sjálfur stendur fyrir þremur stórum viðburðum sem opnir eru almenningi og hvetjum við sem flesta til mæta.

Dagskrá :

Fimmtudaginn 2. febrúar - Gamla Bíó - Íslandsmót Barþjóna og kynningar helstu vínbirgja landsins á straumum og stefnum kokteilgerðarinnar. 

Forkeppni í Íslandsmeistaramóti Barþjóna og Íslandsmóti með frjálsri aðferð í Gamla Bíó, samhliða því verða helstu vínbirgjar landsins með kynningar á sínum vörum.

Laugardaginn 4. febrúar - Center Hótel Plaza – Fróðleikur og vín kynningar.

Hinir ýmsu fyrirlesarar munu veita okkur fróðleik um vín auk þess sem vínbirgjarnir verða með kynningar á sínum vörum. Mjög áhugaverðir fyrirlesarar hafa þegar boðað komu sína, innlendir jafnt sem erlendir.

Sunnudaginn 5. febrúar - Gamla Bíó - Úrslitakeppni Reykjavík Cocktail Weekend, galadinner og ball.

Úrslitin úr öllum keppnum fer fram (top 3), auk þess sem að gala dinner fyrir keppendur, samstarfsaðila og aðra gesti verður haldinn. Kvöldið endar svo á partýi sem stendur fram eftir kvöldi og er aðgangur opinn fyrir almenning eftir kl 22.