Tix.is

Event info

Andaðu, verðlaunaleikrit eftir Duncan Macmillan með ungstirnunum Heru Hilmarsdóttur og Þorvaldi Davíð Kristjánssyni, verður sýnt tímabundið í IÐNÓ frá 29.jan - 20.feb. 2017.

Leikritið er ástarsaga ungs pars á tímamótum sem stendur frammi fyrir stærstu ákvörðun lífs síns, andspænis áhyggjum af þeirra persónulegu framtíð en líka í skugga af framtíð jarðar. Snarpur dúett milli konu og manns í miðjum IKEAdraumnum. Hvað þýðir að eignast barn? Kolefnisspor við að eignast barn eru 10.000 CO2 sem er á við einn Eiffelturn! Ætlum við að vera ábyrgar manneskjur? Erum við réttu manneskjurnar til að eignast barn? Erum við að ofhugsa þetta? Er hægt að skipuleggja líf sitt eins og Excel-skjal?

Maður: Þorvaldur Davíð Kristjánsson
Kona: Hera Hilmarsdóttir
Leikstjóri: Þórey Sigþórsdóttir
Þýðing: Hera Hilmarsdóttir
Útlit kynningarefnis: Ingi Kristján
Ljósmyndir: Kristín Bogadóttir
Kynningar- og markaðsstjóri: Ingibjörg Gréta Gísladóttir
Framleiðandi: Leikfélagið Fljúgandi fiskar

Verkefnið er styrkt af Menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar