Tix.is

Event info

Lögfræðingarnir Dean Strang og Jerry Buting úr Netflix þáttunum Making a Murderer spjalla um þættina og málið við Berg Ebba og áhorfendur.

Umræðan sem skapaðist eftir að bandarísku heimildaþættirnir Making a Murderer duttu inn á Netflix fór ekki fram hjá neinum. Allir höfðu skoðun á málinu, hvernig málsmeðferðin var og hvort Steven Avery og frændi hans voru sekir um að hafa nauðgað og myrt ljósmyndarann Teresu Halbach eða ekki og enn frekar hvernig framleiðendur þáttanna fjölluðu um málið.

Lögfræðingar Stevens, þeir Dean Strang og Jerry Buting, voru hetjur þáttanna og gagnrýndu harðlega hvernig lögregla, lögfræðingar og dómskerfið meðhöndlaði málið. Steven hafði áður setið inni í 18 ár fyrir nauðgun, þrátt fyrir að hafa fjarvistarsönnun, frá 1985 og þar til honum var sleppt árið 2003 þegar DNA sönnunargögn sýndu fram á að hann hafði verið ranglega sakfelldur.

Þeir félagar, Dean og Jerry, urðu í kjölfar þáttanna óvænt að hálfgerðum stjörnum víða um heim og umræður á netinu um um þá félaga fór um víðan völl, allt frá réttlætiskennd þeirra og tilfinninganæmi yfir í fatasmekk og jú, eitthvað var rætt um kynþokka. En báðir voru sammála um að eiginkonum sínum fyndist það sprenghlægilegt!

Þann 26. mars munu Dean Strang og Jerry Buting koma fram á Íslandi og ræða myndina og sakamálið frammi fyrir áhorfendum og með þeim. Nú er tækifærið til að fá svör við öllum þeim spurningum sem brenna enn á vörum okkar um málið og þættina!

Umræðurnar fara fram í Silfurbergi, Hörpu, og mun gríninstinn og lögfræðingurinn Bergur Ebbi stjórna þeim.

Umsjón: Sena Live