Tix.is

Event info

Einstakt verk byggt á samnefndri metsölubók eftir einn virtasta rithöfund þjóðarinnar. Saga um ást í meinum, óslökkvandi þrá, höfnun og missi.

Hin vel ættaða, sjálfsörugga og glæsilega Alda Ívarsen, tungumálakennari við Menntaskólann í Reykjavík, sem ætíð hefur boðið heiminum byrginn, reynist varnarlaus þegar ástin loks grípur hana fyrir alvöru, óvænt og miskunnarlaust.

Steinunn Sigurðardóttir er einn virtasti rithöfundur þjóðarinnar. Skáldsaga hennar Tímaþjófurinn hefur átt miklum vinsældum að fagna bæði hér heima og erlendis frá því hún kom út árið 1986. Nú birtist verkið í fyrsta sinn á leiksviði.

Einstakt skáldverk um leynilegt ástarævintýri, höfnun og missi, og þá sársaukafullu þráhyggju sem ást í meinum getur orðið. Verk sem er skrifað af djúpum mannskilningi og meitluðum húmor.

Byggt á skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur

Leikstjórn: Una Þorleifsdóttir
Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger
Leikgerð: Melkorka Tekla Ólafsdóttir 

Leikarar: Nína Dögg Filippusdóttir, Björn Hlynur Haraldsson, Edda Arnljótsdóttir, Snæfríður Ingvarsdóttir og fleiri.

Sýnt í Kassanum