Tix.is

Event info

Gísli Örn og Vesturport takast á nýjan leik á við Shakespeare, í fyrsta sinn frá hinni feykivinsælu sýningu Rómeó og Júlía. Ný þýðing Hallgríms Helgasonar í uppfærslu þar sem samkeppni, metorðagirnd, slagsmál og ástir skapa kraftmikla leikhúspplifun.

Vesturport hefur nú fengið Hallgrím Helgason aftur til liðs við sig og leggur til atlögu við eitt tilfinningaþrungnasta verk Shakespeares. Eldheitt ástarsamband Óþellós við Desdemónu gerir hann varnarlausan gegn nístandi afbrýðisemi.

Ný uppfærsla þar sem samkeppni, metorðagirnd, slagsmál og ástir skapa kraftmikla leikhúsupplifun í anda hinna vinsælu sýninga Vesturports.

Leikritið er sett upp á 400 ára ártíð Shakespeares.

Höfundur: William Shakespeare
Leikstjórn: Gísli Örn Garðarsson
Leikmynd: Börkur Jónsson
Leikarar: Nína Dögg Filippusdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Aldís Amah Hamilton, Arnmundur Ernst Backman, Björn Hlynur Haraldsson, Guðjón Davíð Karlsson, Ólafur Egill Egilsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir og fleiri.

Sýnt á Stóra sviðinu