Tix.is

Event info

Tónlistarhátíðin Sumarmölin á Drangsnesi fer fram í fjórða sinn þann 11. júní næstkomandi. Á hátíðinni skapast jafnan einstök stemning þar sem fólk á öllum aldri kemur saman til að njóta tónlistarflutnings margra af fremstu listamanna þjóðarinnar í einstöku umhverfi. Sumarmölin fer venju samkvæmt fram í Samkomuhúsinu Baldri á Drangsnesi. Í ár koma fram:

FM Belfast

Hjaltalín

Karó

Kippi Kaninus

Rúna Esra

Snorri Helgason

Úlfur Úlfur

Eftir tónleikana mun hinn geðþekki DJ Hermigervill svo þeyta skífum á Malarkaffi fyrir þá sem hafa ekki fengið nóg af tónlist og stuði.

Sú nýbreytni verður á Sumarmölinni í ár að boðið verður upp á dagskrá á föstudagskvöldinu þar sem uppistandararnir Saga Garðarsdóttir og Hugleikur Dagsson munu troða upp á Malarkaffi.

Miðaverð er 5.900 kr.

Ókeypis fyrir 12 ára og yngri.

Einnig er hægt að kaupa tvo miða og gistingu fyrir tvo á Malarhorni á tónleikadag á 25.900 kr.

Athugið að 18 ára aldurstakmark er á viðburðinn en yngri gestir eru sérstaklega velkomnir í fylgd fullorðinna.

Sumarmölin er haldin í samstarfi við Rás 2, Ölgerðarina og Malarhorn og nýtur stuðnings Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða, Tónlistarsjóðs, Sparisjóðs Strandamanna og Kaldrananeshrepps.