Tix.is

Event info

Danska verðlaunaverkið Enginn hittir einhvern eftir Peter Asmussen verður opnunarsýning í nýju leikrými Norræna Hússins/ Black Box þann 11.mars 2016

 Þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir Asmussen er sett upp hér á land en hann þykir einn beittasti penni Norðurlanda,

 Af þessu tilefni bjóða Norræna Húsið og Annað Svið uppá Master Class þann 12.mars, þar sem listamönnum og almenningi er boðið til fundar við verk Peters Asmussens og það sviðslistafólk sem að að sýningunni stendur.

 Markmiðið er að kveikja áhuga á og vitund um það gjöfula samfélag listamanna sem finnst á Norðurlöndum. Skiptast á hugmyndum og reynslu, kynnast vinnuaðferðum og mynda tengsl.

Peter Asmussen hlaut hin virtu Reumert verðlaun sem leikskáld ársins í Danmörku fyrir Enginn hittir einhvern. En hann er líka  virtur handritshöfundur og þekkja hann margir sem meðhöfund Lars von Trier að kvikmyndinni Breaking the Waves.

 Úr umsögn Reumert nefndarinnar:
Enginn hittir engan er kraftmikið, innblásið og afgerandi leikverk. Peter Asmussen er listamaður tungumálsins og heldur með okkur í dásamlegt og hættulegt ferðalag um furður lífsins. Asmussen setur fram sextán stuttar senur sem eru allt í senn fyndnar, ljóðrænar og ofbeldisfullar og kannar samband karls og konu “


 Dagskráin á laugardaginn 12.mars er opin öllum og ókeypis, en listamenn eru beðnir að skrá sig í vinnusmiðjurnar.

10:00 - 12:00  Dans.
Raisa Foster, höfundur hreyfinga í  verkinu leiðir Master Class. Hún er með doktorsgráðu, lærð í dansi, sjónlist, sviðslist og heimspeki og hefur í starfi rannsakað og endurskilgreint dans.

12:00 Hádegisverður á tilboðsverði hjá AALTO Bistro

13:00- 14:30  Tónlist.
Andreas Ljones höfundur tónlistar leiðir Master Class þar sem hann segir frá og sýnir hvernig hann hefur farið óhefðbundnar leiðir í tónlistarsköpun sinni. Andreas er algert ólíkindatól. Hann getur tekið uppá því að fara heljarstökk í miðju lagi og á útitónleikum hefur hann jafnvel lagst til sunds. Hann er frjór og skemmtilegur og veitir mikinn innblástur. 

Kaffihlé

15:00- 16:30 Leikhús
Mikkel Harder forstjóri Norræna Hússins leiðir samtal við Simon Boberg og listamenn sýningarinnar um Peter Asmussen og verk hans. Simon þekkir Peter náið og hefur stýrt mörgum frumuppfærlum verka hans. Þá verður einnig farið yfir glæsilegan ferill Asmussen sem handritshöfundar.

16:30 Móttaka. Léttar veitingar í boði Norræna Hússins

 Þá verður sýning á Enginn hittir einhvern á bæði laugardagskvöld og sunnudagskvöld kl 20:30.