Tix.is

Event info

SYKUR og GYKUR, SKR og GKR.

SYKUR er uppspretta rafstuðs, botnlaus brunnur taumlausrar gleði og algleymings. Þegar SYKUR spilar fyrir dansi, lýstur saman þrumuskýi syntha og fítonskrafti söngkonunnar Agnesar og rafmagnar andrúmsloftið á gólfinu.

GKR er orðasmiður, tónatemjari og morgunmatráður. GKR upphefur hversdagsleikann og gefur honum merkingu. GKR er æðstiprestur árbítsins. GKR er lífsstíll. Þegar GKR spilar gerum við öll okkar thang.

Komdu og fagnaðu með okkur 12 des á Húrra. Fagnaðu próflokum, fagnaðu yfirvofandi prófum, fagnaðu fæðingu frelsarans, fagnaðu lífinu. Eða fagnaðu bara til þess eins að fagna!