Tix.is

Event info

Swing Kompaníið heldur í jólatónleikaför um landið í desember þar sem þau koma fram í kirkjum með kórum á hverjum stað. Tónleikaförin ber yfirskriftina ,,Jólafönn” og er óhætt að fullyrða að þar sé eitthvað á boðstólnum fyrir alla. Einstaklega skemmtilegar og hressandi útsetningar á jólalögum í bland við hátíðleika skapa einstakan atburð sem enginn má láta fram hjá sér fara.

Swing Kompaníið skipa þau Greta Salóme fiðluleikari og söngkona, Unnur Birna Björnsdóttir fiðluleikari og söngkona, Lilja Björk Runólfsdótir söngkona, Gunnar Hilmarsson gítarleikari, Leifur Gunnarsson bassaleikari og Óskar Þormarsson trommuleikari.