Tix.is

Event info

Stefán Hilmarsson heldur árlega jólatónleika sína að þessu sinni í Silfubergi í Hörpu, nánar tiltekið tvenna tónleika, 11. og 16. desember. Auk Stefáns koma fram fjórir valinkunnir gestasöngvarar, þau Guðrún Gunnarsdóttir, Birgir Steinn Stefánsson, Stefanía Svavarsdóttir og Sara Glowie Pétursdóttir. Á tónleikunum verða flutt lög af jólaplötum Stefáns, „Ein handa þér“ og „Í desember“, í bland við sérvalin stemmnings- og hátíðarlög af ýmsum toga. Hljómsveitin verður eins og jafnan skipuð valinkunnum galdramönnum sem þekktir eru fyrir flest annað en feilnótur.

Nánari upplýsingar um tónleikana má finna á vefsíðunni stefanhilmarsson.is og þar er einnig hægt að nálgast jólaplötur Stefáns.