© 2026 Tix Ticketing
•
June 11
Ticket prices from
ISK 59,900




Aukin afköst með Claude gervigreindartóli
Viltu losna við handavinnu og auka skilvirkni?
Námskeiðið er tveir dagar en kennt er í þrjá tíma í senn.
11. júní 9:00–12:00
12. júní 9:00–12:00
Hvernig viltu verja tímanum þínum? Láttu Claude gera leiðinlegu verkefnin svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir máli. Við skoðum hvernig við hættum að nota gervigreind sem leitarvél og byrjum að láta hana vinna fyrir okkur á skipulagðan máta.
Á námskeiðinu búum við til gögn sem gera þér auðveldara að vinna með Claude. Þú ferð heim með byrjun á samhengisskrá (claude.md skrá) og færni (e. skill). Ég vinn eftir aðferðafræði sem er kölluð context engineering og allt námskeiðið snýst um að setja það upp og að fá skilning á því.
Fyrir hverja?
Þetta námskeið er fyrir verkefnastjóra, stjórnendur, markaðsfólk og frumkvöðla, og alla þá sem sinna fjölbreyttum störfum og vilja læra vinna meira með gervigreind. Hvort sem þú hefur aldrei opnað Claude eða notar hann daglega og villt kynnast Cowork betur.
Á námskeiðinu munu þátttakendur læra:
Hvernig gervigreind virkar
Hvernig er best að nota Claude
Hvernig við látum Claude vinna fyrir okkur með Cowork
Hvernig á að byggja samhengisskrá
Hvernig á að byggja færni
Hvað context engineering er
Stór partur af námskeiðinu eru verkefni
Dagskrá
Dagur 1, 11. júní kl. 9–12
Hvað er Claude
Hvað er gervigreind
Hugtök
Samhengi
Öryggi
Verkefni
Dagur 2, 19. maí kl. 9–12
Umboðsmenn (e. agent)
Samvinna (e. cowork)
Færni (e. skill)
Setja á dagskrá
Plugin
Artifacts
Verkefni
Um kennarann
Þórdís Jóna Ingigerðardóttir er tölvunarfræðingur, frumkvöðull og stofnandi Revera. Hún hefur starfað í hugbúnaðargeiranum í áratug og leitar stöðugt leiða til að auka skilvirkni. Á námskeiðinu kennir hún það sem hún hefur lært af því að vinna með gervigreind.
Aðrar upplýsingar:
Þátttakendur þurfa að koma með tölvu
Þátttakendur þurfa að vera með áskrift af Claude
Stéttarfélög veita allt að 90% styrk af námskeiðisgjaldi
Endilega athugaðu hvort atvinnurekandinn þinn geti ekki greitt námskeiðið
Félagar FKA, UAK, Vertonet og KÍÓ fá afslátt

